Alþjóðlegur dagur íslenska hestsins verður haldinn hátíðlegur 1. maí. Meðlimir Íslandshestasamfélagsins eru hvattir til þess að skipuleggja opið hús í hesthúsum sínum.
Alþjóðlegur dagur íslenska hestsins er á næsta leyti! Þann 1. maí munu meðlimir Íslandshestasamfélagsins um allan heim heiðra íslenska hestinn, bjóða gestum og gangandi í heimsókn í hesthúsin sín og kynna alla fyrir kostum þessa undursamlega hrossakyns.
 
 
Eigendur íslenskra hesta eru hvattir til þess að skipuleggja opið hús í hesthúsum sínum og bjóða fjölskyldu og vinum – sérstaklega þeim sem eru ókunnugir hestum – í heimsókn eða jafnvel í reiðtúr svo að þeir geti upplifað gleðina sem fylgir hestamennsku.
 
Til þess að aðstoða þá sem vilja setja saman dagskrá í tilefni dagsins, höfum við látíð útbúa veggspjald sem er hægt að fylla út og prenta, sjá.
 
Við munum líka halda myndbandasamkeppni, en vegleg verðlaun eru í boði. Fylgist með á Facebook
 
Sjá dagskrána hér fyrir neðan:
 
Miðvikudagurinn, 1.maí:
 
Hestamannafélagið Sprettur Garðabæ/Kópavogi: sýning í samvinnu við landbúnaðarháskólann á Hvanneyri – Samskipahöllinni Spretti, kl. 10-15. Teymt undir börnum kl. 15:30.
 
Hestamannafélagið Skagfirðingur Sauðárkróki: sýning Æskan og hesturinn Reiðhöllin Svaðastöðum kl 13:00
 
Hestamannafélagið Geysir, Hellu: Æskulýðssýning Geysis, Rangárhöllinni kl.11:00
 
Hestamannafélagið Hörður Mosfellsbæ: sýning í reiðhöllinni í Herði kl.14:00
 
Hestamannafélagið Sleipnir Selfossi: teymt undir börnum í Sleipnishöllini  kl. 12:30 – 14:30
 
Hestamannafélagið Glófaxi Vopnafirði: Opið hús í hesthúsinu á Norður-Skálanesi og teymt undir börnum ef veður leyfir kl. 13:00-15:00
 
Hestamannafélagið Sörli Hafnarfirði: Sýning í reiðhöllinni á Sörlastöðum kl 13:00
 
Hestamannafélagið Freyfaxi á Egilsstöðum stendur fyrir firmakeppni í Stekkhólma eða í reiðhöllinni kl. 13:00.
 
Hestamannafélagið Dreyri á Akranesi heldur firmakeppni á Æðarodda kl. 14:00.
 
Hestamannafélagið Snæfellingur á Snæfellsnesi heldur íþróttamót á Grundarfirði kl. 10:00.
 
Föstudagur 3. maí
 
Hestamannafélagið Snæfellingur heldur opið hús og teymt verður undir börnum í fimm reiðhöllum á Snæfellsnesi: Reiðhöllinni í Ólafsvík, Grundarfirði, Stykkishólmi, Hallkellsstaðarhlíð og á Lýsuhóli milli kl. 17:00 og 19:00 í tilefni að íþróttadegi HSH.
 
Laugardagurinn, 4.maí:
 
Hestamannafélögin á höfuðborgarsvæðinu Fákur, Hörður, Máni, Sprettur, Sörli, Sýning, Æskan og hesturinn TM-reiðhöllinni Víðidal Fáki Reykjavík. Tvær sýningar kl.13:00 og 16:00
 
Æskan og hesturinn í Víðidal 4. maí
 
Hin árlega sýning Æskan og hesturinn verður haldin laugardaginn 4. maí næstkomandi í TM-Reiðhöllinni í Víðidal. Þar koma fram efnilegustu hestamenn landsins og sýna afrakstur vetrarstarfsins og er óhætt að segja að sýningin sé hápunktur vetrarstarfsins hjá hinum ungu knöpum.
 
Hópar ungra hestamanna frá öllum hestamannafélögunum á höfuðborgarsvæðinu; Fáki, Herði, Spretti og Sörla sýna fjölbreytt atriði sem þeir hafa æft í hverju félagi fyrir sig. Sýningarnar verða tvær; kl. 13:00 og 16:00. 
 
Þórdís Erla Gunnarsdóttir mun setja sýninguna, en auk hinna fjölmörgu glæsilegu atriða sem börnin sýna mun Friðrik Dór koma fram og flytja vel valin lög.
 
Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.

 

Deila: