Ræktaðu tengslin!

Þann 10. júlí, sunnudaginn eftir Landsmót hestamanna 2022 á Hellu, eru ræktunarbú á svæðinu hvattir til að bjóða heim, hafa opin hús og rækta tengslin. Hinn almenni hestamaður fær tækifæri til að taka hús á hrossabændum og atvinnumönnum í hestageiranum og þarna býðst þessum aðilum að sýna sig og sjá aðra, ná góðu spjalli og skapa mikilvæg sambönd til framtíðar.

Horses of Iceland markaðsverkefnið mun vekja athygli á öllum sem munu taka þátt í þessum skemmtileg degi en samstarfsaðilar verkefnisins fá sérstakan sýnileika og kynningu á Landsmóti og á vef- og samfélagsmiðlum verkefnisins.

Hér má skrá sig beint. Skráningarfresti lýkur 10 júní.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Jelena Ohm, Verkefnastjóri Horses of Iceland
jelena@horsesoficeland.is  

 

Deila: