Fyrsti dagur í þolreiðarkeppni LH, Survive Iceland fór fram í dag og eru sex lið með í keppninni.

Fyrri áfangi dagsins var frá Skarði í Landsveit, um Skarfanes, fram hjá Þjófafossi og endað á Rjúpnavöllum, 28. km. alls. Hermann Árnason sem ríður fyrir lið Líflands átti bestan árangur á þeim legg, eða 1 klst. og 32 mín.

Á seinni áfanga dagsins var riðið frá Rjúpnavöllum, eftir Heklubraut að Gunnarsholti, 31 km. alls. Emelie Sellberg sem ríður fyrir lið H. Hestaferða var með besta tímann á þeim legg eða 1 klst. og 54 mínútur alls.

Eftir daginn leiðir Hermann Árnason með tímann 3 klst. og 31 mín, en Emilie kemur fast á eftir með 3 klst. og 36 mín.

Góðar aðstæður voru reiðar í dag, riðið var um láglendi á góðum götum og í góðu veðri. Hestarnir komu almennt vel út úr dýralæknaskoðun, einhverjir fengu refsistig vegna púls að lokinni reið og lítið var um refsistig áverka.

Staðan eftir fyrsta dag:

  1. Lífland – Hermann Árnason, 03:31
  2. H. Hestaferðir – Emelie Sellberg, 03:36
  3. Íslandshestar – Marjon Pasmooij, 03:42
  4. Eldhestar – Sigurjón Bjarnason, 03:49
  5. Tamangur/Hestaland – Sami Browneller, 04:00
  6. Stálnaust – Karri Bruscotter, 04:12

Á morgun verður riðið um Krakatindsleið og kringum Valafell á Landmannaafrétti. Fylgist með á vef hugbúnaðarfyrirtækisins Samsýn.

Myndir: Gígja Einarsdóttir

Myndasafn

0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0

Deila: