Samningur markaðsverkefnisins Horses of Iceland (HOI) við ríkið hefur verið framlengdur um 18 mánuði, en unnið er að samningi til næstu ára.

Samningur markaðsverkefnisins Horses of Iceland (HOI) við ríkið hefur verið framlengdur um 18 mánuði, en unnið er að samningi til næstu ára.

Að verkefninu standa helstu samtök og hagsmunaaðilar í greininni, Íslandsstofa og stjórnvöld. Markmiðið er að byggja upp orðspor íslenska hestsins til að leggja grunn að auknum gjaldeyristekjum af sölu á hestinum, vörum og þjónustu. 

Horses of Iceland markaðsverkefnið er krónu á móti krónu verkefni milli ríkisins og hestageirans. Þeim sem rækta íslenska hestinn, framleiða hestavörur eða selja þjónustu tengda hestinum býðst að taka þátt í verkefninu, sem og samtökum þessara aðila. Einnig geta þjónustuaðilar, birgjar, stofnanir eða félög gerst aðilar að verkefninu. Þátttakendur taka þátt í að móta áherslur og markaðsaðgerðir og eru kynntir á vefsíðunni Horses of Iceland og á öðrum miðlun HOI.

Þeir sem hafa áhuga á þátttöku í verkefninu eru beðnir að hafa samband við Jelenu Ohm, verkefnisstjóra Horses of Iceland, jelena@islandsstofa.is eða einfaldlega að fylla út þennan rafæna samning.

Deila: