Árið í fyrra var algjört metár í hrossaútflutningi, en 2320 hross voru flutt úr landi, 811 fleiri en árið 2019 sem þó var mjög gott ár með 1509 útflutt hross. Þetta er 53% aukning milli ára. Fara þarf 23 ár aftur í tímann til að finna sambærilegar tölur.

Árið í fyrra var algjört metár í hrossaútflutningi, en 2320 hross voru flutt úr landi, 811 fleiri en árið 2019 sem þó var mjög gott ár með 1509 útflutt hross. Þetta er 53% aukning milli ára. Fara þarf 23 ár aftur í tímann eða til 1997 til að finna sambærilegar tölur, en þá voru 2565 hross flutt úr landi. Þetta kemur fram í samantekt WorldFengs.

Í heildina voru þetta 314 stóðhestar, 1015 hryssur og 991 geldingar. Þar af voru 156 1. verðlauna hross. Samkvæmt Hagstofunni var samanlagt útflutningsverðmæti hrossa árið 2020 rúmir 1,5 milljarðar íslenskra króna, samanborið við rétt rúman milljarð árið 2019. Þetta er einnig 53% aukning milli ára.

Útflutningur til allra helstu markaðssvæða jókst í fyrra. Eins og ævinlega fóru flest hross til Þýskalands, eða 974. Næstflest hross fóru til Svíþjóðar og Danmerkur, eða 306 og 271 hross. Athygli vekur að Bandaríkin eru í fjórða sæti, en 141 hross voru flutt þangað í samanburði við 51 árið 2019. Þetta er gífurleg aukning milli ára, eða 176% vöxtur!

Fleiri markaðir sækja í sig veðrið, en Sviss sem er í fimmta sæti tók við 135 íslenskum hestum. Það er aukning upp á 40 hross eða 42% milli ára. Til Belgíu fóru 43 hross sem er meira en þrefaldur fjöldi þeirra hrossa sem sendur var þangað árið á undan.

Í Bretlandi var tekið við 31 hrossi í fyrra, nærri tvöfalt fleiri hrossum en árið 2019. Útflytjendur hafa löngum litið Bretlandsmarkað hýru auga vegna nálægðar og náinna tengsla við sterka markaði annars staðar í Evrópu. Strembið hefur reynst að vekja áhuga breskra hestaunnenda á íslenska hestinum vegna ríkra reiðmennskuhefða á stórum hestum, en þetta gæti verið vísbending um breytt viðhorf.

Einnig fóru íslenskir hestar til nýrra markaðssvæða árið 2020, en þrjú íslensk hross voru flutt til Lettlands í fyrsta skipti.

Í grein Bændablaðsins um aukinn hrossaútflutning í október sagði Mikael Tal Grétarsson, yfirmaður útflutningssviðs Icelandair Cargo, að margir þættir ýttu undir þessa þróun, m.a. gengisfall íslensku krónunnar. Auk þess eyðir fólk frekar peningi í áhugamál sín þegar ekki er hægt að ferðast og hefur meiri tíma til að sinna þeim.

Gott orð fer af íslenska hestinum erlendis og vegur þar hlutur Horses of Iceland (HOI) þungt, en rannsóknir gefa til kynna að markaðsstarf síðustu ára hafi borið góðan árangur. HOI hefur unnið ötullega að því að kynna kosti íslenska hestsins á samfélagsmiðlum, í blaðagreinum, í sjónvarpsþáttum, á sýningum og víðar, og hafa kynningarnar náð til hundruð milljóna manna um allan heim.

Jelena Ohm, verkefnastjóri HOI segir: „Það er margt sem hefur áhrif á þetta frábæra útflutningsár en það er klárt að fólk eyddi meiru í tómstundirnar sínar frekar en ferðalög í fyrra. Við erum svo heppin að hestamennsku er hægt að stunda að mestu leyti þrátt fyrir heimsfaraldur. Hins vegar teljum við einnig að gott vörumerki með samræmd skilaboð og myndefni sem Horses of Iceland hefur komið á framfæri hafi haft mjög jákvæð áhrif á ímynd íslenska hestsins. Við finnum greinilega fyrir auknum áhuga í mörgum löndum.“

Þrátt fyrir erfitt efnahagsástands á mörgum sviðum vegna COVID-19 faraldursins eru hrossaútflytjendur bjartsýnir og búast við góðum útflutningi árið 2021.

Texti: Eygló Svala Arnarsdóttir. Myndir: Icelandair Cargo.

Myndasafn

0 0 0 0

Deila: