Þeir sem nýta - eða hafa áhuga á að nýta - íslenska hestinn eða ímynd hans í markaðs- og kynningarstarfi eru hvattir til að kynna sér þá samstarfsmöguleika sem eru í boði í tengslum við Horses of Iceland markaðsverkefnið.

Tækifæri í samstarfi við Horses of Iceland

 

Íslenski hesturinn er órjúfanlegur hluti af sögu og menningu Íslands. Ímynd hans er okkur því öllum kær. 

Eitt megin markmið Horses of Iceland verkefnisins er að samræma markaðs- og kynningarstarf til þess að byggja upp orðspor og styrkja ímynd íslenska hestsins á heimsvísu. Með öflugu kynningarstarfi fjölgum við hestamönnum heima og erlendis, aukum eftirspurn eftir íslenska hestinum og vörum og þjónustu honum tengdum og öflum gjaldeyristekna sem skila sér inn í greinina, henni til framdráttar.  

Við bjóðum nýja þátttakendur velkomna inn í verkefnið, ekki aðeins einstaklinga, fyrirtæki og samtök sem tengjast íslenska hestinum beint, heldur einnig þau sem vilja nýta íslenska hestinn eða ímynd hans í markaðssetningu á íslenskum vörum og þjónustu. Ef þitt fyrirtæki nýtir, eða hefur áhuga á að nýta, íslenska hestinn eða ímynd hans í markaðs- og kynningarstarfi viljum við hjá Horses of Iceland gjarnan kynna fyrir þér þá samstarfsmöguleika sem eru í boði.  

Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar um tækifæri til samstarfs.  

-> HAFA SAMBAND

Tryggjum ímynd íslenska hestsins! 
 


 

Deila: