Bókin Hetja eftir Björk Jakobsdóttur kom út hjá Forlaginu 24. október og hefur fengið frábærar viðtökur. Unghryssan Hetja verður viðskila við eiganda sinn og vinkonu, unglingsstelpuna Björgu. Þær ferðast um allt landið í leit að hvor annarri og lenda í háskalegum ævintýrum.

„Þetta er fyrst og fremst spennandi örlaga og þroskasaga ungrar merar og unglingsstúlku,“ segir Björk Jakobsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikskáld, um fyrstu bókina sína Hetju. Björk er einnig mikil hestakona, en hestarnir hennar, ævintýralegar hestaferðir og reynsla hennar af hestamennsku veittu henni innblástur við gerð bókarinnar. Hetja er fimm vetra hryssa og hún og eigandi hennar, Björg, sem er 15 ára, eru miklar vinkonur. Þegar Hetja týnist leitar Björg hennar um allt land, en þær farast alltaf á mis. Hetja reynir að komast heim á eigin spýtur, þvert yfir hálendið, og lendir í miklum háska.

Sagan er sögð bæði út frá sjónarhorni Hetju og Bjargar. Með bókinni vill Björk útskýra „tungumál“ hesta fyrir lesendum, hvernig þeir skynja tilveru sína og hvernig ber að nálgast þá og meðhöndla. Aðalmarkhópurinn er börn og unglingar (8 ára og eldri), en fullorðnir eiga líka erfitt með að leggja hana frá sér! Hetja hefur hlotið frábærar viðtökur bæði gagnrýnenda, m.a. Lestrarklefans, og lesenda og er á leið í endurprentun. Hér er dæmi um umsögn:

„Ég las hana í einum rykk... fékk smá ryk í augun sko ️ Ég fílaði hana í botn. Þetta er svona bók eins og ég hefði viljað lesa sem lítil stelpa. Þetta er ekki kaldur og ópersónulegur texti. Maður les í gegnum textann að Björk þekkir vel til hesta og textinn gefur góða innsýn inn í hvernig hestar hugsa. Þetta er spennandi bók og dramatísk. Ég er ekki frá því að ef að ég hefði lesið hana þegar ég var 12 ára þá hefði ég skælt.“

- Hulda Geirs, Morgunútvarpið

Björk segir hestamennsku hafa ótal kosti, sérstaklega á tímum COVID. „Kvíði er að aukast hjá börnum og unglingum – og ég finn það hjá sjálfri mér líka. Það er ekki til meiri nútvitund en að fara upp í hesthús og kúpla sig út úr daglegu amstri. Það þarf ekki alltaf að fara á bak eða vera rosa flinkur eða eiga flottasta hestinn, bara að fara upp eftir, klappa mjúkri hestasnoppu, opna heyrúllu og finna lyktina af seinasta sumri í skammdeginu, hleypa út og moka. Þetta er stórkostlegur lúxus í þjóðfélagi sem er að aftengjast þegar kemur að náttúrunni. Það hefur aldrei verið nauðsynlegra að veita börnum aðgang að dýrum, nú þegar þau fara ekki í sveit eins og í gamla daga. Að umgangast dýr eykur víðsýni og umburðarlyndi og það ættu að vera sjálfsögð mannréttindi fyrir börn að fá að umgangast dýr. Fyrir mér er ávinningurinn fyrst og fremst andlegur, en þetta er líka heilmikil líkamsþjálfun. Það er alveg eins hægt að stunda hestamennsku eins og handbolta, fótbolta eða fimleika.“ Björk bendir á að hægt sé að nota frístundastyrkinn fyrir hestaíþróttir. Mörg hestamannafélög bjóða börnum upp á að fá hest að láni og leiðsögn í félagshesthúsum, þannig að aðgengi að hestamennsku er orðið mun auðveldara en það var.

Björk og Hetja.

„Svo vona ég að bókin mín Hetja auki skilning barna og áhuga á okkar stórkostlega hestakyni sem hefur verið órjúfanlegur partur af menningararfi okkar Íslendinga frá upphafi,“ segir Björk að lokum. Í rafrænu útgáfuhófi má hlusta á Björk lesa æsispennandi kafla úr nýju bókinni sinni. Hetja er fáanleg hjá Forlaginu og í bókaverslunum, innbundin eða sem rafbók.

Jelena Ohm, verkefnastjóri Horses of Iceland, tekur undir þetta. „Íslenski hesturinn er hetja margra sagna, laga og ljóða, eins og þjóðinni er kunnugt um. Því viljum við viðhalda með frábærum bókum eins og Hetju og auka áhuga á hestamennsku hjá yngri kynslóðinni. Í dag er miklu auðveldara að stunda hestamennsku en áður, nú þarf ekki að eiga hesta, hesthús eða -kerru sjálfur. Mörg félög bjóða upp á frábæra þjónustu.“ Hægt er að leita til Landssambands hestamannfélaga til að finna hestamannafélögin í sínu næsta nágrenni og kynna sér starfsemi þeirra. Horses of Iceland styður útgáfu bókarinnar og nýliðastarf hestamannafélaga.

Myndasafn

0 0 0 0 0 0 0

Deila: