Heimildamynd í tveimur hlutum um íslenska hestinn var sýnd hjá FEI TV, stærsta hestafjölmiðli í heimi, í febrúar og mars.
Heimildamynd í tveimur hlutum um íslenska hestinn var sýnd hjá FEI TV, stærsta hestafjölmiðli í heimi, í febrúar og mars. Myndin eru hluti þáttaraðarinnar FEI Equestrian World, sem nær til nærri 240 milljóna hestaáhugamanna um allan heim. Þetta er mesta kynning um íslenska hestinn fyrr og síðar.
 
 
Þessi heimildamynd er í tveimur hlutum og fjallar um íslenska hestinn fyrir þáttaröðina FEI Equestrian World. Fyrsti hluti myndarinnar var birtur á vefsíðunni fei.org í febrúar sl. Þátturinn nær til rúmlega 238 milljóna manna um allan heim. 
 
Fyrri hluti myndarinnar ber titilinn „Litlir víkingar: Hestar Íslands“, þar birtist viðtal við Jelenu Ohm, verkefnastjóra Horses of Iceland. Hún segir frá eiginleikum íslenska hestsins, sögu hans og þýðingu fyrir íslenska þjóð, mikilvægi Landsmóts og markaðsetningu hrossakynsins. Fjallað er sérstaklega um hreinleika stofnsins og gangtegundirnar og einnig tekið viðtal við Sigurbjörn (Didda) Bárðarson, einn mesta afreksmann Íslendinga í hestaíþróttum.
 
Í seinni hluta myndarinnar er fjallað um hrossarækt og ferðaþjónustu. Leikstjórinn Peter og myndatökumaðurinn Adam heimsækja hrossaræktarbýli Gunnars Sturlusonar, sem er forstjóri FEIF, alþjóðlegu regnhlífasamtaka íslenska hestsins. Þeir hitta einnig Guðmar Pétursson, sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Hestaland á Vesturlandi, fylgjast með hópi af ferðamönnum á leið í reiðtúr og ræða við hann þennan hluta hestamennskunnar, sem er í örum vexti. 
 
„Íslenski hesturinn með sinn einstaka uppruna, hreinræktun og hæfni til að aðlagast óblíðri náttúru, auk stórfenglegs landslags, var fullkomin saga fyrir þáttinn,“ segir Peter. „Við upplifðum íslenska hestinn í alls konar aðstæðum – hlaupandi frjálsan um hrjóstugar sveitir, í rekstri og í undirbúningi fyrir hestaferð, við fæðingu folalds og á Landsmóti. Ég hef tekið upp myndir á hestamótum um allan heim en þetta var frábrugðið öllu öðru sem ég hef séð og heillandi upplifun.“
 
Hægt er að horfa á fyrri hluta myndarinnar hér og seinni hlutann hér.
 
Skoðið einnig myndbandasíðu Horses of Iceland.
 
FEI TV
Fédération Equestre Internationale (FEI) eru alþjóðleg regnhlífasamtök hestamannafélaga um allan heim (m.a. FEIF), þau hafa yfirumsjón með alþjóðlegum hestaíþróttum, þ.m.t. ólympísku keppnisgreinunum. Samtökin halda úti sjónvarpsstöðinni FEI TV, vef- og samfélagsmiðlum sem fá gífurleg áhorf meðal hestaáhugamanna um allan heim. Samtökin voru stofnuð árið 1921 og eru staðsett í Sviss.

Deila: